Sjávarútvegsráðuneytið ákveðið að veiðidagar á grásleppuvertíðinni verði óbreyttir frá því ákveðið var 1. apríl sl. eða 32 talsins. Ráðuneytið segir í frétt á vefsíðu sinni að það hafi á undanförnum dögum fylgst náið með grásleppuveiðum í því skyni að geta áætlað veiði á yfirstandandi vertíð.
Samkvæmt ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar er miðað við að heildarveiði á grásleppu á vertíðinni fari ekki umfram 6.200 tonn. Búið er að veiða rúman þriðjung af því heildarmagni.
Veiði á hvern dag er nokkru meiri en á vertíðinni 2014 og þá hefur veiðileyfum fjölgað um 30%. Ráðuneytið segir að ekkert bendi því nú til annars en áætluðu heildarmagni verði náð innan 32 daga markanna.
Í fréttatilkynningu ráðuneytisins 1. apríl sl. var þess getið að ákvörðun um fjölgun veiðidaga í 32 yrði endurskoðuð þegar ætla mætti að betri yfirsýn fengist yfir fjölda leyfa og aflabrögð. Í ljósi framangreindra upplýsinga um veiðarnar hefur ráðuneytið ákveðið að veiðidögum verði hvorki fjölgað né fækkað, þeir verðið 32 á yfirstandandi vertíð.