Matvælastofnun hefur tilkynnt að það hafi stöðvað tímabundið veiðar Hvals 8 vegna alvarlegra brota á velferð dýra við veiðar á langreyði.

Í tilkynningu segir að stöðvunin gildi þar til úrbætur hafi farið fram og þær sannreyndar af Matvælastofnun og Fiskistofu.

„Við eftirlit kom í ljós að fyrsta skot Hvals 8 þann 7. september hitti dýrið utan tilgreinds marksvæðis með þeim afleiðingum að dýrið drapst ekki strax. Við slík atvik ber veiðimönnum skv. nýrri reglugerð að skjóta dýrið án tafar aftur. Það var ekki gert fyrr en tæpum hálftíma síðar og drapst hvalurinn einhverjum mínútum eftir það. Slík töf telst brot á lögum um velferð dýra og reglugerð um veiðar á langreyðum.“