Á Tálknafirði eru nú að hefjast veiðar og vinnsla á sæbjúgum. Keyptur hefur verið bátur til veiðanna og verið er að koma búnaði fyrir til vinnslunnar, að því er fram kemur í Fiskifréttum sem fylgja Viðskiptablaðinu í dag.

Það er Særöst ehf. á Tálknafirði sem bryddar upp á þessari nýjung í atvinnumálum á Vestfjörðum en fyrir eru tvær sæbjúgnavinnslur í landinu, önnur á Snæfellsnesi og hin á Suðurnesjum. Sæbjúgun verða fryst hjá Særöst og seld til Kína til frekari vinnslu.

Hans Jakob hefur leyfi til sæbjúgnaveiða á svæði A sem er þekktasta veiðisvæðið fyrir sæbjúgun. Báturinn hefur þegar verið afhentur nýjum eigendum og fær hann nafnið Tungufell BA-326.

Sjá nánar í nýjustu Fiskifréttum.