Vegagerðin skrifaði síðastliðinn föstudag undir kaupsamning við Torghatten Nord um kaup á ferjunni Röst. Áhöfn frá Torghatten Nord mun sigla ferjunni frá Noregi til Íslands en um borð verða íslenskir skipstjórnarmenn frá Sæferðum sem munu þá um leið kynna sér skipið. Vegagerðin hefur undirritað viljayfirlýsingu ásamt Sæferðum um að Sæferðir annist siglingar á Breiðafirði með Röstinni. Unnið er að samningi milli aðila.

Ferjan Röst er smíðuð 1991, tekur 250 farþega, rúmar fimm stóra flutningabíla. Í útboði Vegagerðarinnar um rekstur Breiðafjarðarferju 2023-2026 er miðað við að Röst sigli sömu áætlun og Baldur á ferjuleiðinni Stykkishólmur – Flatey – Brjánslækur – Flatey - Stykkishólmur.

Reglubundnar siglingar um miðjan október

Í frétt á heimsíðu Vegagerðarinnar segir að Röstin fari í slipp þegar hún kemur til Íslands hjá Vélsmiðju Orms og Víglundar ehf. í Hafnarfirði sem átti lægsta boð í breytingar sem þarf að gera til að skipið geti þjónað siglingum á Breiðafirði. Þessar breytingar fela m.a. í sér að koma fyrir nýjum þilfarskrana, landfestuvindum, færa til lyftibjörgunarbáta, útbúa geymslusvæði á þilfari og mála skipið að utan. Gert er ráð fyrir að hefja reglubundnar siglingar á Breiðafirði seinni hluta október mánaðar.

Kaupin koma í kjölfar útboðs þar sem einungis fékkst eitt tilboð. Upphaflega stóð til að leggja af ferjusiglingar á Breiðafirði við lok samnings við Sæferðir vorið 2023 en ákveðið var breyta þeirri ákvörðun og halda áfram siglingum í ljósi þess að miklar breytingar hafa orðið á atvinnustarfsemi á sunnanverðum Vestfjörðum bæði hvað varðar uppbyggingu fiskeldis og ferðaþjónustu.

Samfella í siglingum

Sú ferja er þjónað hefur í ferjusiglingum á Breiðafirði hefur sætt gagnrýni bæði vegna öryggis og aðbúnaðar við farþega. Í ljósi þessa var strax árið 2021 farið að kanna hvort hægt væri að finna annað skip sem uppfyllti þær kröfur sem settar eru fyrir ferjusiglingar á Breiðafirði. Gerð var krafa um að skipið væri búið tveimur aðalvélum og hefði haffærni fyrir C svæði en siglingaleiðin um Breiðafjörð flokkast sem C svæði.

Kannað var hvort Herjólfur III gæti sinnt ferjusiglingum á leiðinni en það þótti ekki raunhæfur kostur. Herjólfur er ekki gerður til siglinga inni á fjörðum og er þungur og dýr í rekstri. Auk þess getur hann ekki lagst að núverandi hafnarmannvirkjum, og ekki sinnt flutningum í Flatey.

Afar fáar ferjur standa til boða sem geta siglt á C hafsvæði, eru með tvær vélar og geta jafnframt notast við núverandi hafnarmannvirki. Því var því mjög áhugavert að ferjan Röst stóð til boða og mun þá taka við þjónustu á Breiðafirði í beinu framhaldi af Baldri, og þar með myndað samfellu í siglingum yfir Breiðafjörð.