Landhelgisgæslan vekur athygli á slæmri veðurspá næstu daga, sérstaklega í kvöld og fram á fimmtudag.
Í tilkynningu segir að veðurspár gera ráð fyrir suðaustan hvassviðri en að heldur dragi úr vindi seinni partinn á morgun.
Í kvöld og nótt nálgast landið óvenju djúp lægð með mjög hvössum suðlægum vindi og mikilli ölduhæð og má því gera ráð fyrir miklum áhlaðanda. Stórstreymt var í gær en næstu daga má einnig gera ráð fyrir óvenju hárri sjávarstöðu vegna áhlaðanda sem skapast vegna lágs loftþrýstings og ölduhæðar. Landhelgisgæslan hvetur því til aðgæslu í höfnum og með ströndinni þar sem sjór getur gengið á land, á það sérstaklega við sunnan- og vestanlands.