Hátæknifyrirtækið Valka ehf. í Kópavogi gekk nýverið frá samningi við norska fyrirtækið Slakteriet AS um kaup á heildarkerfi fyrir flokkun og pökkun á heilum laxi í vinnsluhús félagsins í Florø í vestur Noregi.
Kerfið mun auka alla sjálfvirkni í vinnslunni frá því að laxinn er slægður þangað til hann er kominn í lokaðan kassa á bretti. Að auki verður verksmiðjunni stýrt af Rapidfish framleiðslu- og pöntunarkerfinu frá Völku. "Við áætlum að auka framleiðsluna töluvert" segir Kristin Bergstøl Hansen framkvæmdastjóri Slakteriet. "Við munum tvöfalda framleiðslugetuna en um leið lækka kostnað við hverja framleiðslueiningu sem og auka sveigjanleika framleiðslunnar."
Kerfið býður upp á ýmsar nýjungar sem veitir stjórnendum og öðrum starfsmönnum mikilvægar upplýsingar í rauntíma. Til að mynda er mögulegt nota bæði spjaldtölvur og farsíma til fylgjast með framleiðslunni, skrá pantanir, framkvæma gæðaskoðanir og fleira. Þá fylgir kerfinu nýr SCADA módúll sem gefur upplýsingar um allar bilanir í kerfinu á grafískan hátt og gerir starfsmönnum kleift að bregðast samstundis við.
Með þessar sölu eru laxavinnslurnar í Noregi með heildarkerfi frá Völku orðnar þrjár. Valka opnaði nýverið útibú í Noregi og hafa viðskiptin farið vaxandi bæði í laxa- og hvítfiskkerfum.