Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að gefa úthafsrækjuveiðar frjálsar á komandi fiskveiðiári. Forsendan er sú að ekki hafi verið veitt upp í útgefið aflamark á neinu fiskveiðiári frá fiskveiðiárinu 2000/01.

Þessi ákvörðun er tekin til eins árs og henni er ætlað hvetja til betri nýtingar á úthafsrækjustofninum og þannig verði sem mestum verðmætum náð, segir í frétt frá sjávarútvegsráðuneytinu. Í lok ársins verði staðan svo endurmetin. Gert er jafnfram ráð fyrir að lagt verði fram frumvarp á  haustþingi um stýringu rækjuveiða fiskveiðiárið 2010/11.

Í fréttinni er vísað til skýrslu starfshóps ráðuneytisins um veiðar á úthafsrækju frá yfirstandandi ári en þar segir m.a.:

“Að framansögðu virðist sem sóknarstýring gæti hentað við veiðistjórnun á úthafsrækju og myndi það líklega vinna gegn því að heimildir döguðu uppi í lok fiskveiðiárs, auk þess sem slík stýring byggir ekki á aflamarki sem leitt getur til millifærslu bolfisks.  Einnig myndu afleiðingar  óvissu í stofnmati á úthafsrækju væntanlega verða minni. Með sóknarstýringu á rækjuveiðum yrði upphaflega miðað við sóknartíma á tilteknu viðmiðunartímabili og sóknin stillt þannig við innleiðingu kerfisins að talið yrði að stofninn þyldi vel álagið. Eftir því sem rækjukannanir og afli á sóknareiningu í veiðunum breyttust sveiflaðist aflinn, en eðlilegast væri að skilgreina viðmiðunarmörk í afla á sóknareiningu eða í stofnmælingu sem kveði á um hvernig dregið yrði úr sókn eða hún aukin eftir mældum stærðum.”

Síðan segir í niðurstöðum vinnuhópsins:

“Með sóknarstýringu á úthafsrækjuveiðum mætti vinna gegn því að heimildir til úthafsrækjuveiða döguðu uppi.  Um allverulega kerfisbreytingu yrði að ræða sem krefðist breytinga á löggjöf