Á dögunum afgreiddi Bátasmiðjan Trefjar ehf í Hafnarfirði nýjan Cleopatra bát til Royan á vesturströnd Frakklands. Að útgerðinni stendur Aurelien Dumon sem jafnframt er skipstjóri á bátnum. Nýi báturinn hefur hlotið nafnið “P‘tit ZICO”. Hann er 11 brúttótonn og af gerðinni Cleopatra 33.
Aðalvél bátsins er af gerðinni Scania D9 tengd ZF286IV gír. Siglingatæki eru frá Furuno og Simrad. Báturinn er útbúinn til neta og línuveiða. Hann er einnig útbúinn fyrir lítið troll til veiða á lifandi beitu sem notuð er við línuveiðarnar. Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.
Rými er fyrir 12stk 380lítra kör í einangraðri lest. Í vistarverum er svefnpláss fyrir þrjá auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Royan allt árið, reiknað er með að báturinn hefji veiðar núna um miðjan febrúarmánuð. Þrír menn verða í áhöfn.