Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra flutti ávarp í Hörpu á sjómannadaginn þar sem sjómenn voru heiðraðir fyrir björgun mannslífa og farsæl félags- og sjómannsstörf.

„Frá því sjómannadagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur hafa lög verið sett á kjaradeilur sjómanna og útvegsmanna í fjórtán skipti, oftar en á nokkra aðra stétt. Sem segir sína sögu um samstöðu sjómanna og seiglu, en jafnframt um mikilvægi þeirra í virðiskeðju sjávarútvegsins og fyrir þjóðarbúið“ sagði Bjarkey í ávarpi sínu sem birt hefur verið á vef stjórnarráðsins.

Hörð barátta um langa hríð

„Þess vegna er sjómennska ekki aðeins saga hetjudáða, dirfsku og frægðar. Hún er saga um baráttu, um réttindi og um samstöðu,“ hélt ráðherra áfram.

„Stéttarsamtök sjómanna hafa um langa hríð háð harða baráttu fyrir réttindum sínum. Með þeim samtakamætti hafa sjómenn í gegnum tíðina bætt kjör sín og réttindi samhliða því að skapa sér öruggara vinnuumhverfi sem hefur frá upphafi verið sérstakt baráttumál, enda var sjóskaði algengur hér á árum áður.“

Bjarkey sagði að með tækniframförum, aukinni vitund um öryggismál og bættum veðurspám hafi sjóslysum fækkað mikið. „Hér eftir sem hingað til getum við ekki slegið slöku við í þeirri viðleitni að bæta öryggi sjómanna og koma í veg fyrir slys,“ ítrekaði ráðherrann.

Frá fátækt til velmegunar.

Bjarkey sagði þjóðina hafa frá öndverðu átt mikið undir sjávarútvegi. „Og það er ekki ofmælt að segja að nytjar á hafinu hafi á síðustu öld fleytt okkur frá því að vera ein fátækasta þjóð Evrópu til þess velmegunarsamfélags sem erum í dag,“ sagði hún. Afskaplega mikilvægt væri að sjávarútvegurinn fái að vaxa og dafna og að blómleg og fjölbreytt útgerð geti um ókomna framtíð tryggt vinnu, vöxt og velferð á landinu öllu. „Tækifærin eru svo sannarlega til staðar ekki síst í nýsköpun og margs konar fullvinnslu afurða.“

Í þessu kvað ráðherra vísindin leika stórt hlutverk.

Engin mannanna verk fullkomin

„Hefur það verið gæfa okkar að nýta fiskistofna við Íslandsstrendur með ábyrgum og sjálfbærum hætti síðustu áratugi. En engin mannanna verk eru svo fullkomin að þau megi ekki bæta. Og ég trúi því að við séum sammála um það að fiskurinn í sjónum sé sameiginleg auðlind okkar allra,“ undirstrikaði matvælaráðherra.