Frystitogarinn Blængur landaði í Neskaupstað í gær. Aflinn, sem var 516 tonn, var blandaður, en mest var af grálúðu. Verðmætið nemur 223 milljónir krónum en umtalsverð lækkun hefur orðið á fiskverði undanfarið.

Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.

„Hér um borð eru allir sprækir og hressir. Veiðin gekk þokkalega og við fórum hringinn í þessum túr. Við byrjuðum fyrir austan, fórum suður fyrir land og enduðum fyrir austan,“ er haft eftir Bjarna Ólafi Hjálmarssyni skipstjóra Blængs.

„ Veður var ágætt að mestu, en við flúðum að vísu af Vestfjarðamiðum vegna veðurs. Umtalsverð lækkun hefur orðið á fiskverði síðustu mánuði og eru slíkar verðsveiflur afar hvimleiðar. Ef til vill var verðið orðið óeðlilega hátt þegar það var hvað hæst. En verðsveiflur eins og þessar eru ekki nýjar af nálinni og getur ýmislegt valdið þeim. Nú bíðum við bara eftir að verðin hækki á ný,“ segir Bjarni Ólafur á svn.is.