Einn fimmti ungmenna á Bretlandi stendur í þeirri trú að fiskstautar (á ensku fish fingers) séu í raun búnir til úr fingrum fiska, samkvæm nýlegri könnun meðal neytenda. Frá þessu er greint á vefnum SeafoodSource .
Þessi könnun hefur afhjúpað sláandi vanþekkingu meðal neytenda á því hvaðan fæðan sem þeir borða kemur.
Í hópi tvö þúsund manna, sem þátt tóku í könnuninni, vissi einn af hverjum sjö ekki að lambakjöt kemur frá kindum og að svínakótelettur (pork chop) komi frá svínum.
Einnig kom í ljós að einn af hverjum átta halda að býflugnabændur þurfi að kreista hunangið úr býflugunum.