„Þetta er traust og gott skip og stærra og öflugra en gamli Bjarni. Gamli Bjarni var smíðaður árið 1978 og það var kominn tími á endurnýjun. Þetta skip er betra togskip, burðarmeira og allur aðbúnaður og tækjabúnaður er betri en í gamla skipinu. Áhöfnin er afar sæl með þetta nýja skip og það verður svo sannarlega gaman að hefja veiðar,“ segir Gísli Runólfsson skipstjóri á Bjarna Ólafssyni AK. í samtali á vef Síldarvinnslunnar .

Í morgun kom nýr Bjarni Ólafsson AK til Neskaupstaðar eins og fram kom hér á vefnum fyrr í dag.  Nýja skipið leysir af hólmi eldra skip með sama nafni. Nýi Bjarni Ólafsson er keyptur frá Noregi og bar áður heitið Fiskeskjer. Skipið var smíðað árið 1999 og er um 2000 brúttótonn að stærð, 67,4m að lengd og 13m að breidd. Aðalvél  er 7500 hestöfl af gerðinni Wartsila. Burðargeta skipsins er 1980 tonn og er unnt að kæla allan aflann.

Ráðgert er að nýi Bjarni Ólafsson haldi til kolmunnaveiða í færeysku lögsögunni á morgun.