Í eftirlits- og gæsluflugi Landhelgisgæslunnar á TF-Sif, sem farið var í gærkvöldi og nótt, sáust 12 japönsk túnfiskveiðiskip að veiðum suður af landinu rétt utan íslensku efnahagslögsögunnar á svæðinu frá 17. til 25. breiddargráðu.
Ekki eru leyfðar túnfiskveiðar innan íslensku lögsögunnar en samkvæmt heimasíðu sjávarútvegsráðuneytisins var ákveðið að veiðiheimildir Íslands fyrir árið 2009 úr stofni Austur-Atlantshafs bláuggatúnfisks yrðu geymdar og fluttar óskertar til ársins 2011.