Laugardaginn 24.maí sl. stóð þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF togbát að meintum ólöglegum veiðum á Lónsbug við SA-vert landið.
Skipstjóra var tilkynnt að hann hefði verið staðinn að meintum ólöglegum veiðum og skipinu tafarlaust vísað til Hafnar í Hornafirði.
Á Höfn aðstoðaði stýrimaður þyrlunnar lögreglu við rannsókn málsins. Málið er í rannsókn.
Þetta kemur fram á vef Landhelgisgæslunnar.