FHF í Noreg, sem er stofnun sem fjármagnar rannsóknir á sviði sjávarútvegs, fjármagnar prófanir á nýrri tækni til að meta stærð fisks áður en hann er veiddur. Markmiðið er að stuðla að sjálfbærari veiðum og komast hjá veiðum á undirmálsfiski sem minni verðmæti eru í. Tæknin byggir á breiðbands bergmálsdýptarmæli sem notaður yrði við hefðbundnar veiðar fiskiskipa.

Meiri verðmætasköpun

Nú er staðan í raun sú að sjómenn þurfa að bíða þess að fá yfirlit yfir stærð fisks þar til hann skilar sér um borð. Þetta geti þýtt að tíma og kostnaði er varið í veiðar á verðlitlum fiski eða jafnvel fiski sem óheimilt er að veiða. FHF segir að með nýju tækninni geti sjómenn tekið upplýstari ákvarðanir um það hvort og hvenær skuli hefja veiðar. Markmiðið er að tæknin veiti upplýsingar um stærð fisks áður en veiðarfærið fer í sjóinn.

Við rannsóknirnar urðu nokkrar áskoranir á vegi rannsakenda. Upphafleg aðferð við að meta stærð fisks byggðist á greiningum á bergmáli hjá einstökum fiskum. Aðferðin er flóknari en í fyrstu var talið. Ástæðan er sú að lögun fisks er alls ekki einföld. Fiskur er yfirleitt ávalur, með hrygg, haus og ugga sem hafa áhrif á hvernig bergmálið berst til baka.

Ný aðferð lofar góðu

Rannsóknin leiddi í ljós aðra aðferð sem gefur góð fyrirheit. Með því að mæla styrk bergmálsins og horn geislans sem fellur á fiskinn tókst að gera nothæft mat á stærð fiska. Þetta telst vera stórt framfaraskref. Þótt rannsakendur séu ekki alveg komnir á leiðarenda með þróun tækninnar eru þeir nú miklu nær því að þróa hagnýtt tæki fyrir sjómenn.

Vísindamennirnir ætla nú að fínstilla aðferðir sínar og prófa þær við enn raunverulegri aðstæður. Þeir sjá líka fyrir sér að hægt sé að sameina tæknina við önnur tæki, eins og sónar, til að gefa sjómönnum betri heildarmynd af því sem er í hafinu. Þróun þessa búnaðar gæti stuðlað að því að gera sjávarútveginn enn hagkvæmari, arðbærari og sjálfbærari. Rannsóknina leiðir norska hafrannsóknastofnunin en hún er kostuð af FHF. Þátt í rannsókninni taka skip Liegruppen sem er ein stærsta útgerð Noregs.