Uppsjávarveiðiskip Síldarvinnslunnar, Barði NK, Börkur NK og Beitir NK létu öll úr höfn í Neskaupstað á sunnudag og héldu áleiðis á kolmunnamiðin í færeysku lögsögunni.

Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar þar sem segir að óþverraveður hafi verið á miðunum að undanförnu og öll skipin verið í landi í tíu daga.

Haft er eftir Grétari Erni Sigfinnsyni, rekstrarstjóra útgerðar Síldarvinnslunnar, að ekkert annað sé að gera en kanna möguleikana í kolmunnanum.

„Það ætti að vera unnt að fá kolmunnaafla í færeysku lögsögunni ef veður leyfir. Það er loksins núna komið þokkalegt veður og þá er sjálfsagt að reyna. Einhver skip hafa hafið veiðar suðvestur af Færeyjum og þangað verður haldið. Síðan bíða allir eftir niðurstöðu loðnuleitarinnar sem nú er að hefjast. Líklega verður þó ekkert að frétta af henni fyrr en í lok vikunnar,“ segir Grétar á svn.is.