Samkvæmt upplýsingum varðstjóra Landhelgisgæslunnar höfðu í gærmorgun þrír norskir loðnubátar meldað sig til veiða innan íslensku efnahagslögsögunnar. Hafa þeir ekki tilkynnt um afla en samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu er norskum skipum heimilt að veiða 49.002 tonn af loðnu innan íslensku efnahagslögsögunnar á tímabilinu frá 10. janúar til 15. febrúar 2012.

Þetta kemur fram á vef Gæslunnar í dag. Þar segir ennfremur að Fiskistofa hafi nú gefið út leyfi fyrir 78 norsk loðnuskip en samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar hefur reynslan verið sú að aðeins þriðjungur eða fjórðungur skipanna komi til veiðanna. Hafa þau veitt eingöngu í nót en íslensku skipin í flottroll.

Samkvæmt samningi milli Íslands og Noregs verður hafin móttaka aflaskeyta á rafrænu formi þann 1. júlí 2012. Skipstjórum verður því tilkynnt að þeir þurfi að senda handvirkt til Landhelgisgæslunnar öll viðeigandi aflaskeyti (þ.e. COE, CAT, COX og CON).
Árið 2011 var norskum skipum heimilt að veiða 27.171 tonn af loðnu innan íslensku lögsögunnar og fengu norsk skip afgreidd 78 veiðileyfi, segir á vef Gæslunnar.