,,Í dag er mest um að skipin veiði ýmiss konar krabbategundir og rækju og veiðarfærin eru botntroll. Þorskur veiðist með sem aukaafli en leyfilegur þorskafli er hins vegar ákaflega takmarkaður. Flest heimaskipanna eru um 20 metra löng en skipin, þar sem aflinn er unninn um borð, eru þó allt upp í 70 metrar að lengd."
Þetta segir David Kelly framkvæmdastjóri Hampidjan Canada sem staðsett er við Spánverjaflóa (Spaniards Bay) á Nýfundnalandi eða réttara sagt Nýfundnalandi – Labrador eins og fylkið heitir núna. Fyrirtækið byggir á gömlum grunni og starfsemin snýst um að sjá útgerðarfyrirtækjum í landshlutanum fyrir veiðarfærum og þjónustu.
Svo sem kunnugt er hrundi þorskstofninn undan ströndum Nýfundnalands – Labrador í byrjun síðasta áratugar liðinnar aldar og það varð til þess að stjórnvöld í Kanada settu algjört bann við þorskveiðum við austurströnd landsins árið 1992. Nú rúmlega 20 árum síðar sýnir stofninn hæg batamerki en beinar þorskveiðar eru þó enn bannaðar. Ekki þarf að fjölyrða um áhrif þessa fyrir sjávarbyggðirnar á Nýfundnalandi – Labrador því lengst af síðustu öld nam árleg þorskveiði að jafnaði um eða yfir 250 þúsund tonnum og mest varð veiðin í lok sjötta áratugarins en þá veiddust meira en 800 þúsund tonn.
Sjá nánar á vef Hampiðjunnar.