Brim seldi vörur fyrir 110 milljónir evra, jafnvirði 17,4 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Á sama tímabili í fyrra nam salan 112 milljónum evra.

Þá var hagnaður Brims á þriðja ársfjórðungi þessa árs 25 milljónir evra, jafnvirði ríflega 3,8 milljarða króna, samanborið við 23 milljónir á þessu tímabili í fyrra.

Þetta kemur fram í uppgjöri Brims fyrir ársfjórðunginn.

Veiðarnar gengu vel

Um starfsemina segir að makrílveiðar félagsins hafi byrjað í lok júní og gengu vel.

„Skipin Venus, Víkingur og Svanur voru með samstarf um veiðarnar þar sem aflanum var dælt í eitt skipanna þangað til það náði settum afla. Skipin veiddu ríflega 26 þúsund tonn af makríl sem landað var á Vopnafirði. Makrílveiðum lauk 31. ágúst og hófust þá síldveiðar á norsk-íslenskri síld og stóðu þær veiðar fram í október,“ segir í tilkynningu Brims.

Þá segir að bolfiskveiðar og -vinnsla hafi gengi vel. „Afli bolfiskskipa félagsins var 13 þúsund tonn á þriðja ársfjórðungi en var um 11 þúsund tonn árið áður. Frystitogarinn Sólborg RE-27 var tekinn í notkun um miðjan ágúst eftir gagngerar endurbætur. Örfirisey RE-4 og Viðey RE-50 stoppuðu vegna viðhaldsverkefna á tímabilinu.“

Einnig er sagt frá því að þann 24. september hafi Brim gert samkomulag um kaup á 10,83% hlut Sjávarsýnar ehf. í Iceland Seafood International hf.

Kemur fram að við lok ársfjórðungsins, þann 3. september síðastliðinn, hafi gengi hlutabréfa Brims verði 73,6 krónur á hlut og markaðsvirði félagsins þá verið 142 milljarðar króna. Til samanburðar má nefna að gengi bréfa félagsins við lokun markaða í Kauphöllinni í gær var 66,20.

Fjölbreyttur rekstur á óvissutímum

„Afkoma fjórðungsins er sambærileg því sem var í fyrra og sýnir hve mikilvægt er að vera með fjölbreyttan rekstur. Það er óvissa í Evrópu núna vegna stríðs og verðbólgu,“ er haft eftir Guðmundi Kristjánssyni, forstjóra Brims.

Segir Guðmundur erfitt að spá um hvað gerist á afurðamörkuðum Brims á næstu mánuðum. Það styrkir Brim að vera með margar tegundir afurða eins og sjáist á þessum ársfjórðungi þar sem verð á lýsi og mjöli hafi verið gott.

„Sterkt og gott sölunet styrkir alla þætti starfseminnar á tímum eins og núna. Efnahagur félagsins er traustur og eiginfjárstaðan góð. En það er líka óvissa á Íslandi en óvissuna má minnka ef atvinnulífið, bæði atvinnurekendur og verkalýðsfélög, hefja strax málefnalegt og skynsamlegt samtal við stjórnvöld um hvernig við ætlum að ná niður verðbólgunni,“ er haft eftir Guðmundi Kristjánssyni á brim.is þar sem nánar má lesa um rekstur og stöðu félagsins.