Sjávarútvegsráðherra hefur úthlutað 5.662 þorskígildistonna byggðakvóta fiskveiðiársins 2015/2016. Alls er byggðakvóta úthlutað til 32 sveitarfélaga og í þeim fengu 48 byggðarlög úthlutun.

Úthlutun byggðakvótans byggir á upplýsingum frá Fiskistofu um samdrátt í botnfiskafla, botnfiskaflamarki og vinnslu botnfisks annars vegar og samdrætti í rækju- og skelvinnslu hins vegar frá fiskveiðiárinu 2005/2006 til fiskveiðiársins 2014/2015.

Hámarksúthlutun til byggðarlags er 300 þorskígildistonn og fá þrjú byggðarlög það hámark, Flateyri, Skagaströnd og Djúpivogur. Lágmarksúthlutun er 15 þorskígildistonn, eigi byggðarlag á annað borð rétt til úthlutunar, og fá 5 byggðarlög þá úthlutun.