„Við fórum á Vestfjarðamið í haugabrælu. Um leið og við vorum komnir á miðin var komið ágætasta veður og við vorum alls með 110 tonna afla á tiltölulega stuttum tíma. Veiðiferðin tók alls fjóra daga höfn í höfn,” segir Heimir Guðbjörnsson, skipstjóri á Helgu Maríu AK, í viðtali við heimasíðu Brims en skipið kom til hafnar í Reykjavík í hádeginu á mánudag.
Að sögn Heimis hóf hann veiðar austur af Djúpál en þaðan vann hann sig austur að Þverálshorni. Góður afli, aðallega þorskur, fékkst á slóðinni.
„Við fórum svo í Víkurálinn. Þar var góð karfaveiði og við tókum það magn sem við máttum veiða,” segir Heimir.
Líkt og greint hefur verið frá hér á heimasíðu Brims, var þorskveiði mjög góð á Dohrn-bankanum á milli Íslands og Grænlands í lok nóvember og framan af desembermánuði.
„Veiðin dalaði svo en enginn hefur komist til að athuga veiðina í lengri tíma vegna stöðugra stórviðra á þessum slóðum. Við munum hins vegar gefa Dohrn-bankanum góðar gætur þegar veiðar hefjast að nýju eftir jólahátíðina,” segir Heimir en þess má geta að Helga María mun fara í næstu veiðiferð sína á milli jóla og nýárs.