Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE komu til löndunar í Eyjum í nótt. Bæði skip voru með fullfermi eftir stuttan túr og var aflinn blandaður.

Á heimasíðu Síldarvinnslunnar er rætt við Ragnar Waage Pálmason, sem var skipstjóri á Bergey í veiðiferðinni, og segir hann að það hafi aflast mjög vel.

„Við vorum allan tímann á Péturseynni og þetta gekk vel. Þarna liggur fiskurinn í síld og síldarhrognum og það er býsna líflegt. Við fórum út eftir hádegi á sunnudag og komum til hafnar klukkan fjögur í nótt. Það var nóg að gera hjá köllunum í túrnum enda aflinn jafn og góður allan tímann,“ segir Ragnar.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, segir að þetta hafi verið flottur túr.

„Túrinn var bara 36 klukkutímar, það gekk svo vel að fá í skipið á Péturseynni. Þetta var eins og best verður á kosið og það er svo þægilegt að hafa fiskinn svona við bæjardyrnar. Þá var veðrið einnig afar gott, logn og blíða allan túrinn,“ segir Birgir Þór.