Samtök fiskframleiðenda og útflytjanda (SFÚ) tekur undir áskorun Landssambands smábátaeigenda til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að strandveiðar verði gefnar frjálsar í ágúst. Þetta sé nauðsynlegt til að auka framboð á fiskmörkuðum og stuðla að rekstraröryggi þeirra fyrirtækja, sem reiða sig á fiskmarkaði til hráefnisöflunar.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu, en þar segir jafnframt:

„Í kjölfar langvinns sjómannaverkfalls í upphafi þessa árs heimilaði ráðherra hliðrun á 30 prósentum af úthlutuðum aflaheimildum milli fiskveiðiára til að koma til móts við þarfir og hagsmuni stórútgerðar með samþætta starfsemi veiða og vinnslu. Þessi hliðrun hefur haft þau áhrif að framboð á fiskmörkuðum á síðari hluta yfirstandandi fiskveiðiárs hefur dregist alvarlega saman með alvarlegum afleiðingum fyrir sjálfstæða framleiðendur og íslenskan sjávarútveg í heild.“

SFÚ skorar því á ráðherra að taka tillit til brýnna hagsmuna smærri aðila í greininni, „þeirra aðila sem hafa leitt vöruþróun, sókn inn á nýja útflutningsmarkaði og verðmætasköpun í íslenskum sjávarútvegi. Markvissast er að stórauka aflaviðmið til strandveiða og gefa þær frjálsar alla daga í ágúst,“ segir þar.