Reglugerð um strandveiðar hefur verið birt í Stjórnartíðindum og er reglugerðin nánast óbreytt frá síðasta ári.

Í reglugerðinni kemur fram að veiðar mega hefjast fimmtudaginn 2. maí, aflamagn verður ekki minna en 10 þúsund tonn af þorski, veiðar eru heimilaðar fjóra daga í viku, mánudag - fimmtudags. Óheimilt verður að róa á uppstigningardag, annan í hvítasunnu, 17. júní og á frídegi verslunarmanna.

Í 3. grein reglugerðarinnar er bætt við ákvæði sem orðast svo:

„Í umsókn lögaðila um leyfi til strandveiða skulu koma fram upplýsingar um eignarhald á lög­aðilanum.“

Heimildir til strandveiða samkvæmt reglugerðinni skiptast á fjögur löndunarsvæði, sem eru:

  1. Eyja- og Miklaholtshreppur – Súðavíkurhreppur,
  2. Strandabyggð – Grýtubakkahreppur,
  3. Þingeyjarsveit – Djúpavogshreppur,
  4. Sveitarfélagið Hornafjörður – Borgarbyggð.

Skipi á strandveiðum er einungis heimilt að landa afla innan síns löndunarsvæðis.

Hægt að sækja um strandveiðileyfi með rafrænum skilríkjum í stafrænni umsóknargátt á Ísland.is