Afli strandveiðibáta á tímabilinu maí - júlí varð 7.059 tonn. Alls hafa 664 bátar stundað veiðarnar, sem skilar 10,6 tonnum að meðaltali á hvern bát, að því er fram kemur í samantekt á vef Landssambands smábátaeigenda.
Heildarfjöldi sjóferða varð 13.905 - meðalafli í róðri leggur sig því á 508 kg.
Mánaðarlegur viðmiðunarafli á strandveiðum í ár hefur til þessa nægt fyrir leyfilegan fjölda veiðidaga á svæðum C og D og í maí og júní á svæði B. Heildarfjöldi veiðidaga á tímabilinu voru 48, bátar á B svæði máttu róa í 45 daga og á svæði A hefur viðmiðunarafli dugað í 31 dag.
Aflahæstir á hverju svæði eru:
Gugga ÍS 63 (skrnr 6013) 20,023 tonn A
Hrafntinna ÍS 150 (skrnr 2825) 27,516 tonn B
Gunnar KG ÞH 34 (skrnr 2076) 31,456 tonn C
Örn II SF 70 (skrnr 2491) 35,277 tonn D
Sjá nánar á vef LS