Stofnvísitala þorsks á þessu ári hækkar eins og á síðasta ári eftir töluverða lækkun árin 2018-2021. Flestir árgangar ýsu mældust yfir meðalstærð í fjölda.

Yngstu árgangar þorsks, árgangar 2021, 2022 og 2023, mældust undir meðalstærð í fjölda. Meðalþyngdir 1–4 ára þorsks mældust undir meðaltali áranna 1996–2023 en eldri árgangar reyndust við eða yfir meðaltali. Þetta er meðal helstu niðurstaðna stofnmælinga botnfiska úr haustralli Hafrannsóknastofnunar sem fór fram 28. september til 24. október.

Í ár tóku togararnir Breki VE-61 og Þórunn Sveinsdóttir VE-401 þátt í verkefninu ásamt rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni HF-200.

Stofnvísitala ýsu með þeim hæstu frá upphafi

Stofnvísitala ýsu er svipuð og í fyrra sem var með þeim hæstu síðan mælingar hófust. Flestir árgangar ýsu mældust yfir meðalstærð í fjölda en líkt og í þorski var meðalþyngd 1–4 ára ýsu undir meðaltali rannsóknatímabilsins.

Mynd úr haustralli 2023, tekin um borð í Breka. Ljósm. Kristín Valsdóttir

Vísitala grálúðu er undir langtímameðaltali en vísbendingar eru um bætta nýliðun.

Vísitala gullkarfa er hærri en undanfarin ár en vísitala djúpkarfa hefur verið svipuð en lág í um tuttugu ár. Nýliðun þessara tveggja stofna hefur hins vegar verið léleg um árabil og eru engar vísbendingar um breytingu þar á.

Vísitala ufsa er undir langtímameðaltali

Vísitala blálöngu hækkar umtalsvert í mælingunni í ár og vísitala gulllax mælist sú hæsta frá upphafi mælinga.

Vísitölur ýmissa tegunda sýna hækkun í ár og má þar nefna þykkvalúru, steinbít, hlýra, löngu, keilu og kolmunna. Vísitala lúðu er sú hæsta sem mælst hefur frá 1996. Vísitölur sandkola, skarkola og hrognkelsis eru hins vegar með þeim lægstu sem mælst hafa í haustralli. Vísitala ufsa er undir langtímameðaltali.

Vísitölur flestra brjóskfiska og annarra djúpfiskategunda hækkuðu eða stóðu í stað frá fyrra ári.

Sjávarhiti

Mælingar á botnhita sjávar sýndi kólnun á minna en 400 m dýpi fyrir norðvestan og norðaustan en hlýnun fyrir sunnan og vestan.

Mælingar sýndu einnig hlýnun fyrir sunnan á meira en 400 m dýpi en botnhiti á þessu dýpi og öðrum svæðum stóð í stað eða sýndi merki kólnunar.