Stjórn Landssambands smábátaeigenda hefur sent Jóni Bjarnasyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra áskorun um að auka nú þegar leyfilegan heildarafla í ýsu um 20 þús. tonn, að því er fram kemur á vef LS.
Ályktunin sem stjórnin samþykkti er eftirfarandi: „Stjórn Landssambands smábátaeigenda skorar á Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að bæta nú þegar 20 þúsund tonnum við áðurútgefinn heildarafla í ýsu. Það er skoðun stjórnar LS að við þá ákvörðun muni ýsuafli þeirra sem veiða með botnvörpu ekki aukast. Eðlileg viðskipti kæmust aftur á með leigukvóta og draga mundi úr þvinguðum viðskiptum. Veiðiheimildir mundu leita til þeirra sem nú geta ekki veitt þorsk sökum mikillar ýsugengdar á veiðislóðinni. Hér er um afar nauðsynlega aðgerð að ræða þar sem við blasir milljarða tap í minnkandi útflutningsverðmætum og stórháskalegt svelti á mikilvæga markaði. Tilfinnanlegur skortur er á línuveiddri dagróðraýsu.“
Í bréfi stjórnarinnar til ráðherra segir ennfremur að samhljómur sé meðal smábátaeigenda um að víðast hvar á veiðislóð þeirra hafi magn ýsu aukist á milli ár. Stjórn LS hafi af því verulegar áhyggjur að ekki takist að gera verðmæti með veiðum úr úthlutuðum heildarafla á ýsu á yfirstandandi fiskveiðiári, eins og gerðist á síðasta fiskveiðiári. Helsta ástæða þess séu ónægar veiðiheimildir krókaaflamarksbáta. Þar vegi tveir þættir þyngst, annars vegar botnfrosinn leigumarkaður og hins vegar gríðarlegar skerðingar á heildarafla ýsu sl. tvö fiskveiðiár, segir ennfremur á vef LS.