Norska fyrirtækið Bioretur A/S vill efna til samstarfs við stóru landeldisfyrirtækin á Íslandi um vinnslu á fiskeldismykju frá fyrirtækjunum sem að óbreyttu gæti skapað talsverða áskorun fyrir fyrirtækin að losna við. Bioretur hefur haft milligöngu um útvegun þurrkaðrar fiskeldismykju til framleiðslu á áburði í verksmiðju í Noregi. Gangi áformin eftir hérlendis verður þurrkaðri fiskeldismykju safnað hér og hún unnin í verksmiðjunni í Noregi en jafnframt eru uppi hugmyndir um að reisa verksmiðju á Íslandi sem framleiðir tilbúinn áburð þegar nægt framboð verður á mykjunni sem áætlað er jafnvel strax á næsta ári.
Fulltrúar Bioretur, Steinar Wasmuth framkvæmdastjóri, og Hermund Ramsøy, yfirmaður markaðs- og upplýsingamála, voru á Íslandi í þarsíðustu viku og funduðu með forsvarsmönnum stóru landeldisfyrirtækjanna sem og fulltrúum frá Umhverfis-, Orku- og Matvælastofnun. Steinar segir fyrirtækin mjög áhugasöm um slíkt samstarf enda séu þau meðvituð um þá áskorun sem þau standa frammi fyrir þegar framleiðslan er komin að fullu af stað sem felst í því hvernig eigi að meðhöndla fiskeldismykju sem verður til við eldið.
„Ísland er í einstæðri stöðu meðal þjóða heims hvað þetta varðar. Hér eru landeldisfyrirtækin nokkurn veginn samstíga í sínum uppbyggingarfasa. Taki þau höndum saman um vinnslu á því sem til fellur af hliðarafurðum í eldinu sem er meðal annars fiskimykja geta þau haft af henni hliðartekjur í stað þess að standa frammi fyrir kostnaðarsömum aðgerðum til að farga henni og flytja á förgunarstað, áskorun sem mun aðeins vaxa þegar fram líða stundir,“ segir Wasmuth.
Ofurþurrkarar
Bioretur framleiðir vélbúnað og „Super Heated Steam Dryers“, svokallaða ofurþurrkara. Þetta eru fyrir ferðarlitlar tækjaeiningar sem draga vökva úr fiskeldismykju með möguleika á því að einungis standi eftir 90% þurrefni. Wasmuth lagði áherslu á í samtali við Fiskifréttir að þeirra aðkoma væri fyrst og fremst ráðgjöf og milliganga um að íslensk landeldisfyrirtæki grípi tækifærið sem blasir við þeim með sjálfbærri nýtingu á fiskeldismykju. Fyrirtækjunum væri í sjálfsvald sett að velja tækjabúnað frá þeim framleiðendum sem þau kysu færu þau þessa leið. Bioretur hefur í tíu ár séð um öflun hráefnis jafnt úr húsdýra- og fiskeldismykju til framleiðslu á lífrænum áburði í Noregi. Fyrirtækið hefur jafnframt byggt upp markað fyrir vöruna í Asíu og fleiri löndum og að sögn Wasmuths er eftirspurnin mun meiri en framboðið er.
Mikill sparnaður mögulegur
Samkvæmt áformum landeldis- fyrirtækja á Íslandi er stefnt að framleiðslu á rúmum 147 þúsund tonnum af laxi á ári og samkvæmt Bioretur verða við það til hvorki meira né minna en 22 milljónir tonna af fiskeldismykju með 0,1% af þurrefnum sem þarf að meðhöndla. Með þurrkun þannig að eftir verði 20% af þurrefnum í mykjunni verða samt eftir 110.344 tonn sem falla síðan niður í 24.521 tonn með 90% þurrkun. Bioretur hefur sett upp dæmi um sparnað á flutningi á fiskeldismykju til förgunar með þurrkun á henni. Viðmiðið er 5.000 tonna ársframleiðsla og flutningur á fiskeldismykju til förgunar 300 km leið.
Með 20% þurrkun: Flutnings- og förgunarkostnaður miðað við 51.000 km flutning á ári er €670.000 og losun CO² ígildum 21 tonn.
Með 90% þurrkun: Flutningskostnaður á ári til förgunar fellur niður í €140.000 á ári og losun CO² ígilda fer niður um 80%. Með þessu næðist fram sparnaður hjá landeldisstöð með 5.000 tonn framleiðslu upp á €530.000 á ári, rúmar 77 milljónir ÍSK.
Frá kostnaði í tekjur
Wasmuth segir að í stað þess að greiða fyrir förgun fiskeldismykjunnar gætu íslensk landeldisfyrirtæki haft tekjur af henni. Miðað við 40.000 tonna ársframleiðslu fengjust €100 fyrir hvert tonn af þurrkaðri fiskeldismykju (88%-95% þurrefni) færi hún til framleiðslu á áburði í verksmiðju sem reist yrði á Íslandi. Á ársgrundvelli skapaði þetta tekjur fyrir íslensku landeldisfyrirtækin upp á um það bil €370.000 á ári. Þá falli einnig niður förgunargjöld upp á €1,5 milljónir á ári. Auk þess gæti Ísland þá verið í þeim sporum að geta hætt innflutningi á mörg þúsund tonnum af áburði og framleitt hann sjálft úr því sem fellur til við landeldi á laxi.