Nýhafið er verkefni hjá Matís, í samstarfi við fyrirtækið Sæbýli, þar sem unnið verður að því að byggja grunn til að skala upp sæeyrnaeldi á Íslandi. Heimsmarkaðurinn hefur vaxið gríðarlega síðastliðin 10 ár og allt bendir til að vöxtur verði áfram. Verkefnið er unnið með styrk frá Rannís.

Frá þessu segir á vef Matís.

Sæbýli hefur byggt upp aðstöðu á Eyrarbakka fyrir áframeldi og í Þorlákshöfn fyrir undaneldi og frjóvganir.

70 tonn á ári

Framleiðsla inn á markað er nú á fyrstu stigum en eldisstöðin hefur framleiðslugetu upp á 70 tonn á ári inn á heimsmarkað sem telur að minnsta kosti 150 þúsund tonn.

Langtímamarkmið Sæbýlis er að byggja upp eldisiðnað á Íslandi með framleiðslu á yfir þúsund tonnum á ári með því að byggja upp staðlaðar framleiðslueiningar víðar á Íslandi. Til þess að svo verði þarf að leysa ákveðnar tæknilegar hindranir fyrir uppskölun og út frá því hanna „state-of-the-art“ staðlað framleiðsluhús.

„Ennfremur verður gögnum aflað í þessu verkefni til þess að sýna fram á hollustu og heilnæmi afurðanna ásamt gögnum um umhverfisáhrif framleiðslunnar. Komið verður á samskiptum við íslenska neytendur, veitingastaði og hagsmunaaðila ásamt markaðsaðgerðum erlendis,“ segir í fréttinni.