Frá því um aldamót hafa 27 bátar og skip strandað hér við land á meðan stjórnendur sváfu við stýrið. Þetta kom fram í fréttum ríkissjónvarpsins í gærkvöldi. Nýjasta dæmið um það er strand krókaaflamarksbátsins Jónínu Brynju ÍS frá Bolungarvík en sá sem stjórnaði bátnum var sofandi við stýrið - það staðfestir Jón Ingólfsson forstöðumaður rannsóknarnefndar sjóslysa.

Nefndin hefur á undanförnum árum aftur og aftur vakið athygli á þessu vandamáli og ekki að ástæðulausu. Síðan árið 2000 hafa 27 bátar og skip strandað hér við land, vegna þess að stjórnendur sváfu á verðinum. Þeir voru að meðaltali búnir að vaka í næstum heilan sólarhring áður en bátur þeirra strandaði, í einu tilvikinu hafði stjórnandi ekki hvílst í næstum tvo sólarhringa.

Í rannsóknarskýrslum nefndarinnar um þessi óhöpp má sjá endurteknar athugasemdir og ábendingar - að skipverjar þurfi nægilega hvíld, að rekja megi orsök strands til vinnuálags, skipstjóri sofnaði við stjórn bátsins, og það virðist hafa komið oft fyrir að stjórnendur virkjuðu ekki viðvörunarbúnað sem þó er í leiðsögutækjum og dýptarmælum. Það gerðist til dæmis þegar báturinn Pétur Konn strandaði í júlí 2007, nánast á sama stað og Jónína Brynja í nóvember. Í Jónínu var viðvörunarbúnaður heldur ekki í gangi, þótt þar væri nýjasta tækni til staðar, að því er segir í frétt ríkisútvarpsins.

Eftir því sem næst verður komist fórst enginn eða meiddist alvarlega þegar þessir 27 bátar sigldu upp í land meðan stjórnendurnir sváfu.