Upp úr klukkan hálf níu í morgun var áhöfn björgunarskipsins Björg á Rifi kölluð út vegna snurvoðarbáts sem hafði misst vélarafl.

Báturinn var þá staddur vestur af Melrakkaey fyrir utan Grundarfjörð. Einnig var áhöfn á björgunarbátnum Reyni frá Grundarfirði kölluð út.

Skipverjar voru á snurvoðarveiðum og fengu nótina í skrúfuna með þeim afleiðingum að gír gaf sig og því ekki unnt að sigla skipinu fyrir eigin vélarafli.

Björgunarbáturinn Reynir, sem er harðbotna slöngubátur, var kominn að snurvoðarbátnum upp úr 9.

Skipverjar höfðu þá skorið nótina frá skrúfunni og lá hún í sjónum við bátinn. Engin hætta var á ferðum, hæg vest-norðvestan verð átt, hægur sjór og lítið rek á bátnum.

Rétt fyrir klukkan 10 var búið að koma taug á milli Bjargar og snurvoðarbátsins og hélt Reynir þá til hafnar í Grundarfirði. Björg setti stefnuna til Ólafsvíkur með bátinn í togi.

Þangað komu skipin rétt fyrir hádegi og í kjölfarið sigldi Björg til heimahafnar á Rifi.