Smíði á nýju skipi Hraðfrystihússins-Gunnvarar hófst formlega á dögunum, en hinn 18. apríl kl. 10:38 hófst stálskurðurinn í skipasmíðastöðinni í Kína. Tímasetningin er engin tilviljun því að Kínverjar telja að tölunni 8 fylgi gæfa. Við þetta tækifæri voru einnig sprengdir margir Kínverjar eins og alsiða er þar í landi. Frá þessu er skýrt á heimasíðu Hraðfrystihússins Gunnvarar.

Skipið mun hljóta nafnið Páll Pálsson ÍS-102, en undirbúningurinn að smíðinni hefur tekið um ár, sem er nokkru lengri tími en áætlanir gerðu ráð fyrir.

Nú þegar hafa allir stærri hluti sem munu fara í skipið verið valdir, ss. vélar, framdrifsbúnaður og allur spilbúnaður.

Páll Pálsson aðalvél
Páll Pálsson aðalvél
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Aðalvél skipsins var prufukeyrð á plani í samsetningarverksmiðjum MAN turbo & diesel í Aurangabad í Indlandi þann 6. apríl síðastliðinn. Prófanirnar aðalvélarinnar komu að öllu leyti vel út. Á myndinni eru Hilmar Lyngmó, Sverrir Pétursson og Guðni Guðnason fyrir framan við vélina.

Finnur Kristinsson hefur verið ráðinn eftirlitsmaður með smíði Páls Pálssonar og Breka VE, sem er smíðaður í sömu skipasmíðastöð. Finnur, sem var yfirvélstjóri á Arnari HU frá Skagaströnd til fjölda ára, verður staðsettur í skipasmíðastöðinni, en honum til aðstoðar hefur verið ráðinn kínverskur tæknifræðingur.

Þegar lengra líður á verkið er gert ráð fyrir að vélstjórar frá útgerðunum verði einnig við eftirlit auk þess sem aðrir starfsmenn fyrirtækjanna koma að verkinu.

Hér er listi yfir helsta búnað skipanna:

• Aðalvél: MAN Diesel & Turbo type 6L27/38 1790 Kw

• Gír: Reintjes  gírhlutfall 9,2:1

• Skrúfubúnaður: MAN ,skrúfa 3 blöð, þvermál 4,7 m.

• Ásrafall: AEM 40 – 50 Hz 1500 KVA

• Ljósavélar: Caterpillar C18 400 Kw og C9 142 Kw

• Vindur: Naust Marine / Ibercisa, allar vindur rafdrifnar.

• Stýrisvél: Scan Steering

• Skilvindur: Alfa Laval

• Loftþjöppur: Sperre

• Léttabátur: Norsave

• Dekkkrani: Palfinger

• Löndunargálgi: Shanghai Goodway Marine Engineering Co.

• Dælur: Ascue

• Krapaísvél: North Star / Bitzer

• Aðaltafla: SAM electronics

• Siglingar og fiskileitartæki: Furuno, Simrad

• Útihurðir: Libra

Fylgjast má með smíði skipsins á Fésbókarsíðu nýsmíðarinnar, HÉR