Smábáturinn Ragnar SF, sem rær frá Breiðdalsvík í sumar, sló eigið Íslandsmet í lok síðustu viku þegar hann kom með 22,3 tonn úr einum róðri. Fyrra met hans var 21,4 tonn sem fengust í maí á síðasta ári.
,,Við fengum þessa veiði á Gerpisgrunni og uppistaðan aflans var þorskur. Róðurinn hófst um klukkan fjögur síðdegis síðastliðinn föstudag og við vorum komnir í land tæpum sólarhring síðar,“ segir Arnar Þór Ragnarsson skipstjóri, en Ragnar SF er yfirbyggður beitningarvélabátur.
Sjá nánar viðtali við Arnar Þór í Fiskifréttum í dag.