„Ef ég skil þetta rétt þá er Gunnar Davíðsson að vísa til greina í leiðandi vísindaritum sem áróðurs,“ segir Rune Jensen, formaður laxaverndunarsamtakanna Salmon Camera í Noregi.

Gunnar, sem er sjávarútvegsfræðingur og deildarstjóri í auðlindadeild Tromsfylkis, var í ítarlegu viðtali í jólablaði Fiskifrétta. Talaði hann meðal annars um áróðursmaskínu gegn fiskeldi og sagði sjókvíaeldi vistvænustu eldisaðferðina.

„Maður getur bara vonast til þess, jafnvel á tímum falsfrétta, að opinberir fjölmiðlar og yfirvöld séu fær um að greina hvað eru bjagaðar getgátur og hvað eru vísindalegar staðreyndir,“ segir Rune.

Mesti mengunarvaldurinn

„Almenningur, fjölmiðlar og yfirvöld í Noregi eru að verða meðvituð um hina gífurlegu mengun sem stafar frá laxeldisstöðvum og sömuleiðis hið stjarnfræðilega umfang lobbýisma í laxeldi sem hefur verið drifinn áfram af takmarkalausum sjóðum í áratugi og tekist að fela hinar nöturlegu staðreyndir um iðnað þeirra fyrir öllum heiminum eftir svipaðri uppskrift og tóbaksiðnaðurinn beitti á sínum tíma,“ segir Rune. Laxeldi sé mesti mengunarvaldurinn við strendur Noregs.

„Vandanum með laxalús er annaðhvort mætt með því að setja fleiri tonn af eiturefnum í sjóinn eða með því að kvelja laxinn með því að bursta hann vélrænt eða sjóða í heitu vatni. Minntist einhver á dýravernd?“

Kynni sannanir í sjónvarpi

Að sögn Rune hefur laxveiði í Noregi dregist saman um 85 prósent síðan laxeldi hófst í stórum stíl. Áhrifin séu þó mun víðtækari en hvarf laxa, sjóbirtinga og sjóbleikju. Heilbrigður sjávarbotn við Noreg eigi að hýsa á bilinu 50 til 60 mismunandi lífverur. Við laxeldisstöðvar sé aðeins að finna um 3 til 4 tegundir sjávarorma.

Rune segir fullyrðingu Gunnars um áróður auðugra laxveiðimanna og landeigenda ótrúverðuga. Það sama gildi um fullyrðingar um jákvæða afstöðu almennings í Noregi til laxeldisiðnaðarins.

„Ég skora á Gunnar að endurtaka þessar fullyrðingar opinberlega í norskum fjölmiðlum og koma þar á eftir og mæta augliti til auglitis í kappræður í  landsdekkandi sjónvarpsútsendingu þar sem hann getur kynnt „sannanir“ sínar sem yfirtrompa vísindalegar staðreyndir.“