Stjórnir Farmanna- og fiskimannasambands Íslands og Félags skipstjórnarmanna skora á sjávarútvegsráðherra að auka verulega við útgefinn þorskkvóta.
Í ályktun samtakanna segir að bein sókn í þorskstofninn sé um þessar mundir aðeins örlítið brot af því sem verið hafi í gegnum tíðina. Á sama tíma séu fiskimenn almennt, sem aldrei fyrr, á einu máli um að ástand þorskstofnsins sé mun betra en fram komi í gögnum Hafrannsóknarstofnunar og þar af leiðandi sé engin áhætta tekin með ákvörðun um aukningu.