Skip Síldarvinnslunnar sem leita loðnu fyrir vestfjörðum hafa orðið vör við torfur, en leiðindaveður hamlar veiðum.

Frá þessu segir í frétt Síldarvinnslunnar en heimasíða fyrirtækisins ræddi við Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóra á Berki NK, í morgun en skipið var þá statt djúpt vestur á Hala við leit.

Börkur hefur leitað loðnu ásamt Bjarna Ólafssyni AK síðustu daga. Hjörvar sagði að á Halanum yrðu þeir varir við loðnutorfur.

„Við erum búnir að leita á Kolbeinseyjarhryggnum, norðan við Strandagrunn og Þverálshorn og erum núna djúpt vestur á Halanum. Það er fyrst núna sem við sjáum loðnutorfur en þá bregður svo við að það er leiðindaveður. Hérna er bölvuð bræla, 25-28 metrar og sjórinn mínus ein gráða. Það á hins vegar að lægja í kvöld og þá verður einhver friður í sólarhring eða svo samkvæmt spá. Togarafréttir greina frá því að vart verði við meira líf á svæðinu hérna og fiskur sem fæst er fullur af loðnu. Það er sem sagt loðna hér á ferðinni en það er fyrst núna sem við verðum varir við einhverjar alvörulóðningar. Menn verða að vera þolinmóðir í loðnuleitinni. Þetta á allt eftir að koma og það er mikilvægt að fylgjast vel með. Loðnutorfurnar sem við sjáum hér standa djúpt en við sjáum til hvað gerist þegar veðrið batnar,“ segir Hjörvar.