Sjómenn hafa undanfarið orðið varir við talsvert af síld í innsiglingu Vestmannaeyjahafnar. „Það eru talsvert þykkar lóðningar hérna sem ná frá Nausthamri og út fyrir Klettsnefið. Við ætlum að ná okkur í hentugri veiðafæri og kanna ástand síldarinnar,” segir Valur Bogason hjá útibúi Hafró í Eyjum í samtali við Eyjafréttir.
„Það er erfitt að segja hvers vegna síldin leitar inn í höfnina. Líklega er hún að leita að betri kælingu en sjórinn er ekkert kaldari inn í höfninni. Þar er ekkert æti þannig að síldin er ekki að elta fæðu enda lítið í fæðuöflun núna. Þannig að það er mjög erfitt giska á hvað valdi því að síldin fari þessa leið,“ segir Valur.
Talsvert er síðan síld gekk síðast inn í höfnina í Vestmannaeyjum, líklega einhverjir tugir ára. Í Vestmannaeyjum eru tvö fyrirtæki sem gera út á síld og spurning hvort ekki væri hægt að dæla síldinni beint inn í verksmiðjurnar, segir á vef Eyjafrétta.