Sigurjón Arason prófessor og yfirverkfræðingur hjá Matís hlaut sérstaka viðurkenningu samstarfsvettvangs fyrirtækja innan Íslenska sjávarklasans fyrir framlag hans til aukinnar verðmætasköpunar í íslenskum sjávarútvegi. Viðurkenningin var veitt í Vorboði sem haldið var í Húsi Sjávarklasans síðastliðinn föstudag.
Sigurjón hefur haft forystu um ýmsar rannsóknir og þróun í vinnslu sjávarafurða undanfarna þrjá áratugi sem skilað hafa verulegum ábata fyrir íslenskt þjóðarbú. Þá hefur Sigurjón þjálfað og kennt þúsundum einstaklinga í sjávarútvegi og m.a. á vettvangi Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri.
Sjá nánar á vef Sjávarklasans.