BAADER styrkir áfram teymið á Íslandi með ráðningu á Sigsteini Grétarssyni í stöðu forstjóra. Sigsteinn er margreyndur stjórnandi og leiðtogi með margþætta reynslu af alþjóðaviðskiptum og matvælatækni, að því fram kemur í fréttatilkynningu frá Skaganum 3X.

Ráðningin er liður í að styrkja enn frekar stöðuna í íslenska hluta fyrirtækisins sem samanstendur af BAADER Ísland og Skaginn 3X. Haft er eftir Robert Focke forstjóra BAADER Fish í Þýskalandi að þetta sé mikilvæg ráðning til að styrkja íslenska stjórnendateymið og að ráðningin sé lykilskref í áætlunum BAADER að vera óumdeildur leiðtogi í heildarkerfum fyrir mismunandi tegundir fisks.

Aðspurður segir Sigsteinn að það séu spennandi verkefni framundan.

„BAADER hefur verið hornsteinn í Íslenskum sjávarútvegi í yfir 60 ár og hefur við góðan orðstír leitt sjálfvirkni í tækjabúnaði. Verkefnin halda áfram og við ætlum okkur að vera sá aðili sem er leiðandi í góðu samstarfi við íslenskan sjávarútveg.“