Hvalveiðivertíðinni lauk í dag og veiddust alls 24 langreyðar á tímabilinu. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., staðfesti þetta við www.mbl.is, að því er greint er frá á www.ruv.is.

Vertíðin var sú síðasta í fimm ára veiðileyfi Hvals hf. Það kemur nú í hlut Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, að ákveða hvort leyfið verði endurnýjað.

Hvalveiðitímabilið átti að hefjast 21. júní en degi áður stöðvaði ráðherra veiðarnar tímabundið. Þær voru aftur leyfðar með hertum skilyrðum í enda ágúst eftir að ráðherra kynnti nýja reglugerð. Henni var ætlað að bæta umgjörð veiða á langreyðum.