Aðstoðarforstjóri Ice Fish Farm segir það geta tekið rúman áratug að fá eitt rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldi. Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun Viðskiptablaðsins.

Ice Fish Farm, sameinað félag Laxa Fiskeldis og Fiskeldis Austfjarða, er meðal þeirra sem bíða eftir að Matvælastofnun afgreiði umsókn um nýtt rekstrarleyfi. Að því er segir í Viðskiptablaðinu er um að ræða umsókn í Seyðisfirði sem lokið hefur umhverfismati. Haft er eftir Jens Garðari Helgasyni, aðstoðarforstjóra Ice Fish Farm, að sú umsókn haf verið í níu ár í ferli. Einnig hafi Ice Fish Farm sótt um að sameina leyfi í Reyðarfirði og hafi sú umsókn sömuleiðis verið í ferli í nokkur ár.

„Það hefur alltaf tafist og tafist, nú síðast út af því að það hefur allt verið sett á stopp vegna áhættumats siglinga. Það er ferli sem er búið að taka of langan tíma og mun lengri tíma heldur en greininni var lofað,“ segir Jens við Viðskiptablaðið.

Að sögn Jens eru leyfisferlin ekki mæld í mánuðum heldur í mörgum árum. „Ég hef oft nefnt það að þegar þú sækir um leyfi í fiskeldi og það fæðist barn á sama tíma, ef allt gengur upp, þá loksins þegar þú nærð að slátra fyrsta fisknum úr því leyfi að þá er barnið að fermast,“ hefur Viðskiptablaðið eftir Jens.