„Ferskur Landlax og fersk Landbleikja sem Samherji fiskeldi setti á markaðinn hér á landi undir eigin nafni í nóvember á síðasta ári, hlutu strax góðar viðtökur neytenda,“ segir í færslu á vef Samherja.

Haft er eftir Birgi Össurarsyni, sölu- og markaðsstjóra Ice Fresh Seafood, sem annast sölu afurða Samherja, að salan hafi gengið mjög vel þrátt fyrir að Landlaxinn og Landbleikjan hafi lítið sem ekkert verið auglýst.

„Samherji fiskeldi hefur framleitt landeldisfisk í tvo áratugi og öllum þáttum er stýrt með það að leiðarljósi að tryggja bestu mögulegu eldisaðstæður fyrir fiskinn.“ er haft eftir Birgi sem kveður allar stöðvar fyrirtækisins vera með alþjóðlegar vottanir, auk þess sem einungis sé notast við gæða fóður.

Auglýsa meira á næstu vikum

„Við seljum afurðirnar víða á erlendum mörkuðum og erum glöð að geta boðið áhugasömum neytendum á Íslandi eldisvörurnar okkar. Ég er sérlega ánægður með viðtökurnar hérna heima og á næstu vikum auglýsum við fiskinn og minnum landsmenn þar með enn frekar á þessa hollu og góðu matvöru, “ segir Birgir Össurarson á vef Samherja.

„Gæðin eru upp á tíu, bæði hvað varðar framleiðsluna og fiskinn,“ er enn fremur haft eftir Einari Geirssyni, matreiðslumeistara veitingastaðarins RUB 23 á Akureyri, sem kveðst gefa landlaxinum og landbleikjunni hæstu einkunn.