Hollenski risatogarinn Maartje Theadora leggur af stað frá heimalandi sínu í þessari viku áleiðis yfir Atlantshafið og hyggst skipstjórinn nota 160 fermetra stórt segl til þess að hjálpa til við að knýja skipið áfram.

Útgerð skipsins gerir sér vonir um að með notkun seglsins verði unnt að draga úr olíukostnaði skipsins um tíu prósent á leið þess til Suður-Ameríku. Skipið er 141 metra langt. Frá þessu er skýrt í norska blaðinu Aftenposten.

Bollaleggingar hafa átt sér stað um notkun segla á fiskiskip í þessum tilgangi síðustu mánuði og misseri og um tíma áformaði útgerð uppsjávarskipsins Libas í Noregi að prófa þessa nýjung en ekkert varð af þeim áformum. Íslenskir útgerðarmenn hafa einnig gefið þessum möguleika gaum en lengra er málið ekki komið hérlendis.