Hafrannsóknastofnun leggur til, í samræmi við varúðarsjónarmið, að afli rækju í Arnarfirði fiskveiðiárið 2023/2024 verði ekki meira en 166 tonn og að afli rækju í Ísafjarðardjúpi verði enginn, eða 0 tonn eins og segir á vefsíðu stofnunarinnar.

„Stofnvísitala rækju í Arnarfirði lækkaði árið 2023 og var svipuð og á árunum 2018-2021. Mikið var af ýsu á svæðinu en árin 2020-2023 voru vísitölur ýsu þær hæstu frá árinu 2011,“ segir á hafro.is. Þá segir að stofnvísitala rækju í Ísafjarðardjúpi hafi mælst mjög lág.

„Vísitölur ýsu hafa verið háar frá árinu 2004 og frá árinu 2020 hafa þær verið mjög háar í sögulegu samhengi. Útbreiðslusvæði ýsu hefur stækkað og haustið 2023 fannst ýsa inn eftir öllu Ísafjarðardjúpi,“ segir Hafrannsóknastofnun.

Nánari upplýsingar er í meðfylgjandi hlekkum frá Hafrannsóknastofnun.

Hlekkur á ráðgjöf um Arnarfjörð.

Hlekkur á ráðgjöf um Ísafjarðardjúp.

Hlekkur á tækniskýrslu um Arnarfjörð.