Hafrannsóknastofnun hefur birt ráögjöf sína í humri þar sem lagt er til að í samræmi við varúðarsjónarmið verði humarveiðar ekki heimilaðar árin 2022 og 2023.

Hafrannsóknastofnun leggur jafnframt til að veiðar með fiskibotnvörpu verði áfram bannaðar á afmörkuðum svæðum í Breiðamerkurdjúpi, Hornafjarðardjúpi og Lónsdjúpi til verndar humri.

Afli á sóknareiningu árið 2021 var sá minnsti frá upphafi og hefur lækkað samfellt frá hámarkinu árið 2007. Stofnstærð humars í stofnmælingunni 2021 hefur lækkað um 27% frá árinu 2016, en stofnmæling með núverandi fyrirkomulagi talninga á humarholum hófst þegar stofninn var þegar í mikilli lægð.

Þéttleiki humarhola við Ísland árið 2021 var metinn 0.066 holur/m 2 sem er með því lægsta sem þekkist meðal þeirra humarstofna sem Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) veitir ráðgjöf fyrir.

Fyrirliggjandi gögn benda til að nýliðun sé í sögulegu lágmarki og að árgangar frá 2005 séu mjög litlir. Verði ekki breyting þar á má búast við áframhaldandi minnkun stofnsins.