Ríkisstjórn Portúgals hefur hætt tímabundið að innheimta virðisaukaskatt við sölu nokkurra tegunda matvara í innkaupakörfum landsmanna, þar á meðal af ferskum og söltuðum þorski. Á þessar vörur var áður lagður 6% virðisaukaskattur en hann er niður felldur frá 18. apríl til 31. október 2023. Frá þessu segir á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum.

Að óbreyttu verður skattheimtan færð í fyrra horf í haust, alla vega hafa stjórnvöld ekki gefið annað til kynna.

Sósíalistaflokkur Portúgals náði óvænt meirihluta á þjóðþingi landsins í kosningum í janúar 2022 og glímir við efnahagserfiðleika í ýmsum myndum. Breytingar í skattkerfinu eru hugsaðar til að létta landsmönnum ögn lífið á tímum dýrtíðar og tilheyrandi kaupmáttarskerðingar.

Hefur Nuno Araujo, framkvæmdastjóri Grupeixe – saltfiskfyrirtækis Vinnslustöðvarinnar í Portúgal – merkt áhrif skattleysisins í beinhörðum sölutölum?

„Spurn eftir saltfiski hefur aukist lítillega á undanförnum vikum en ég tengi það ekki endilega því að virðisaukaskatturinn var afnuminn. Það þarf lengri tíma til að draga slíkar ályktanir. Við höfum annars sterka stöðu og markaðshlutdeild með íslenska saltfiskinn sem er hátt skrifaður hér.

Laun eru lág í Portúgal, verðbólga, rýrnandi kaupmáttur, háir vextir og hátt húsnæðisverð. Venjulegar fjölskyldur eiga í erfiðleikum með að eignast eða leigja íbúðir. Í slíku ástandi er matvörumarkaðurinn erfiður og samkeppni þar mikil og hörð.

Húsnæðismálin og vextirnir eru mál málanna í samfélagsumræðunni hérna. Ljós punktur er að atvinnuleysi er tiltölulega lítið og tekjur af erlendum ferðamönnum koma sér vel nú sem fyrr.“

Nuno Aranjo, framkvæmdastjóri Gupeixe, til vinstri og António Jose Leite, fréttamaður CNN-sjónvarpsstöðvarinnar við Vestmannaeyjahöfn fyrir páska 2022. CNN gerði þá út teymi til Eyja til að skrásetja í máli og myndum uppruna saltfisksins sem Portúgalar vilja allra helst hafa á veisluborðum sínum um jól og páska og helst sem oftast að auki.
Nuno Aranjo, framkvæmdastjóri Gupeixe, til vinstri og António Jose Leite, fréttamaður CNN-sjónvarpsstöðvarinnar við Vestmannaeyjahöfn fyrir páska 2022. CNN gerði þá út teymi til Eyja til að skrásetja í máli og myndum uppruna saltfisksins sem Portúgalar vilja allra helst hafa á veisluborðum sínum um jól og páska og helst sem oftast að auki.

Vörur og þjónusta með 6% í stað 23% áður

Í Portúgal er 23% virðisaukaskattur meginregla en 6% skattþrep aðallega fyrir matvæli. Skatturinn var sem sagt afnuminn 18. apríl á nokkrum tegundum af fiski, kjöti, grænmeti, ávöxtum og af matarolíu.

Um leið og þetta var gert lækkaði ríkisstjórnin virðisaukaskatt úr 23% í 6% á ýmsu matarkyns, svo sem á niðursoðnum sjávarafurðum, skelfiski, jurtasmjöri og drykkjum sem í eru þurrkaðir ávextir, korn, ferskir ávextir eða grænmeti.

Þá er ýtt undir hreyfingu og orkusparnað með því að lækka virðisaukaskatt á reiðhjólum og reiðhjólaviðgerðum og í þágu orkuskipta var lækkaður virðisaukaskattur á hitunar- og eldunartækjum sem nota lífmassa sem orkugjafa (etanól, metan eða lífdísil).

Síðast en ekki síst er hlúð að menningunni með því að lækka virðisaukaskatt á aðgöngumiðum á tónleikum, í leikhúsum, skemmtigörðum, söfnum og kvikmyndahúsum.

Sviss sér á vsk-báti

Virðisaukaskattur í Portúgal er í hærra kanti þess sem gerist og gengur í Evrópusambandsríkjum. Í ESB er virðisaukaskattur lægstur í Luxemborg (16%), á Möltu (18%) og á Kýpur, í Þýskalandi og Rúmeníu (19%). Hæstur er hann í Ungverjalandi (27%) og þar á eftir fylgja Króatía og Svíþjóð (25%).

Sviss er sér á báti á Evrópska efnahagssvæðinu með 7,7% virðisaukaskatt.

Langflest ESB-ríki eru með lægra skattþrep líka, aðallega fyrir mat og fleiri nauðsynjar.

Ísland er á svipuðu róli og gerist og gengur í ESB, með 24% virðisaukaskatt sem meginreglu og lægra skattþrep, 11%.