Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna þann 29. febrúar var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur er til skyldra aðila um 5%.

Verð á karfa lækkar um 5% en verð á slægðri og óslægðri ýsu er óbreytt. Breytingar þessar taka gildi frá og með 1. mars. n.k.