Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerð þar sem hámarksafli í þorski er aukinn um 30 þúsund tonn.
Heildaraflamark verður því 160 þúsund tonn á yfirstandandi fiskveiðiári, í stað 130 þúsund tonna sem áður hafði verið ákveðið.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu en þar kemur fram að með þessari ákvörðun er stefnt að nokkru hægari uppbyggingu viðmiðunarstofns og hrygningarstofns en áður hafði verið áformað.
„Þessi ákvörðun er tekin í ljósi þeirra efnahagserfiðleika sem þjóðarbúið á við að etja og með hliðsjón af jákvæðari vísbendingum um stöðu þorskstofnsins sem fram komu í stofnmælingu botnfiska sl. Haust,“ segir í tilkynningunni.
„Í þeirri mælingu kom fram að heildarvísitala þorsks væri mun hærri en undanfarin ár.“
Jafnframt er gert ráð fyrir að á næsta fiskveiðiári verði heildaraflamark í þorski eigi lægra en 160 þúsund tonn.
„Þótt uppbygging viðmiðunar- og hrygningarstofn þorsks verði hægari en fyrirhugað var, er þessi ákvörðun í samræmi við yfirlýst markmið um sjálfbærar veiðar á þorski sem og öðrum nytjastofnum hér við land,“ segir í tilkynningunni.