„Óánægja sjómanna stafar ekki af þróun gengismála eins og útgerðin lætur í veðri vaka, heldur af því að á meðan útgerðin bjó við góðæri dældi hún milljörðum af hagnaði fyrirtækjanna út til sín en á sama tíma var ekki hægt að gera kjarasamninga við sjómenn,“ segir Konráð Alfreðsson varaformaður Sjómannasambands Íslands í viðtali í Fiskifréttum í dag.
Samninganefndir sjómanna og útgerðarmanna koma saman til fundar hjá ríkissáttasemjara í dag klukkan 13. Síðasti fundur var haldinn 20. desember en á þeim fundi voru lagðar fram viðbótarkröfur sjómanna sem m.a. snerust um leiðréttingu á olíuverðstengingu, nýsmíðaálagið, sjómannaafsláttinn, fæðispeninga og fatapeninga, að sögn Konráðs sem leiðir samninganefnd Sjómannasambandsins í veikindaforföllum Valmundar Valmundssonar formanns sambandsins.
Konráð kvaðst líta svo á að það væri góð fjárfesting fyrir útgerðina að koma til móts við sjómenn í kjarasamningum og hafa þá ánægða. Í dag væru menn hundóánægðir.
Sjá nánar í nýjustu Fiskifréttum.