Matvælastofnun hefur nýtt rekstrarleyfi vegna 2.700 tonna hámarkslífmassa í seiðaeldi á laxi að Röndinni á Kópaskeri. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stofnunarinnar.

„Fiskeldi Austfjarða hf. sótti um nýtt rekstrarleyfi vegna 2.700 tonna hámarkslífmassa í seiðaeldi á laxi að Röndinni á Kópaskeri. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin þann 4. mars 2022. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Fiskeldi Austfjarða hf. FE-1203 að Röndinni á Kópaskeri en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar,“ segir á mast.is.

Þá kemur fram að framkvæmd fyrirtækisins hafi farið í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

„Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar,“ segir á mast.is.